Fullbúin þjónustugátt fyrir þitt fyrirtæki
Settu upp fullbúna þjónustugátt fyrir þitt fyrirtæki á vikum í stað mánaða.
Helstu eiginleikar
Aukin þjónusta og skilvirkni
Aukin þjónusta og skilvirkni
Reikningar og hreyfingaryfirlit
Rafrænir reikningar og hreyfingaryfirlit aðgengileg viðskiptavinum á einum stað.
Örugg rafræn innskráning
Innskráning eftir þínu höfði með fjölbreyttum auðkenningarleiðum.
Tenging við þitt viðskiptakerfi
Tenging við fjölda viðskipta- og upplýsingakerfa, t.d. Business Central og DK.
Í útliti þíns vörumerkis
Með hönnunarkerfi er þjónustugáttin aðlöguð að þínu vörumerki.
Aukin þjónusta og skilvirkni
Viðskiptavinir geta á einfaldan máta sótt þjónustu án aðkomu starfsfólks.
Skýjalausn í sífelldri þróun
Reglulega uppfærslur eru innfaldar í mánaðarlegri áskrift.
Ótal möguleikar
Sveigjanleg lausn fyrir ólíkar þarfir
Sveigjanleg lausn fyrir ólíkar þarfir
Við erum meðvituð um að hver viðskiptavinur er einstakur og kröfur þeirra ólíkar. Grunnur er sveigjanleg lausn sem auðveldar þér að bjóða upp á upplýsingagjöf eða aðgerðir á bak við örugga innskráningu. Kerfið inniheldur hönnunarkerfi með yfir 100 viðmótseiningar auk þess sem hægt er að sérsmíða einingar inn í kerfið og aðlaga útlit þess að þínu vörumerki.
Tengingar
Hvaða þjónustu vilt þú tengjast?
Grunnur getur tengst fjölda viðskipta- og upplýsingakerfa á hraðvirkan og einfaldan máta, þar á meðal Business Central, DK, Dynamic AX, GoPro og Workpoint. Við fylgjumst einnig grannt með nýjustu straumum og stefnum og bætum við nýjum tengingum eftir þörfum.
Hraðara innleiðingarferli
Kláraðu dæmið á nokkrum vikum
Kláraðu dæmið á nokkrum vikum
Hvers vegna að byrja alveg frá byrjun ef þú þarft þess ekki? Grunnur styttir innleiðingartíma þjónustugáttar niður í nokkrar vikur í stað mánaða. Þá einfaldar kerfið alla þróun og uppsetningu til muna, ólíkt því þegar ákveðið er að sérsmíða kerfi frá grunni.
Hannað til að styðja stranga persónuverndar- og öryggisstaðla
Örugg auðkenning
Innskráning eftir þínu höfði
Grunnur býður upp á fjölbreyttar auðkenningarleiðir, til dæmis með rafrænum skilríkjum í gegnum Ísland.is, Active Directory og innskráningu í gegnum samfélagsmiðla eða tölvupóst. Kerfið byggir á leiðandi öryggisstöðlum og persónuverndarlöggjöf ásamt því að notast við nýjustu tækni í dulkóðun og aðgangsstýringu svo að þú getur verið viss um öryggi þinna notenda.
Betri notendaupplifun
Lægri rekstrarkostnaður & reglulegar uppfærslur
Lægri rekstrarkostnaður & reglulegar uppfærslur
Grunnur er einfalt og öruggt kerfi sem sparar tíma og kostnað, eykur öryggi og bætir notendaupplifun. Kerfið er uppfært reglulega til að tryggja áreiðanleika og öryggi, sem þýðir lægri rekstrarkostnað fyrir þig þar sem reglulegar uppfærslur, viðbætur og öryggisúttektir eru innifaldar í áskrift.
Fjölbreytt kerfi
Settu þjónustugátt upp eins og þér hentar
Settu þjónustugátt upp eins og þér hentar
Viltu bjóða þínum viðskiptavinum upp á aðgang að reikningum & hreyfiyfirliti eða bara eitthverju allt öðru og meira. Tilbúnar einingar eins og auðkenning, fullkomin notendastýring og hönnunarkerfi gerir það að verkum að hægt sé að sníða kerfið nákvæmlega að þínum þörfum á mettíma.
80%
Hraðari uppsetning
50%
Lækkun kostnaðar
99%
Uppitími tryggður
+100
Einingar í boði
80%
Hraðari uppsetning
50%
Lækkun kostnaðar
99%
Uppitími tryggður
+100
Einingar í boði