Öll samskipti á einum öruggum stað
Lífeyrissjóðir og stéttarfélög eiga það sameiginlegt að vera í miklum samskiptum við félagsmenn, launagreiðendur og aðra hagaðila þar sem fjöldi fyrirspurna berast á hverjum degi. Með Grunni færðu öruggt vinnuumhverfi þar sem öll samskipti og lykilupplýsingar eru á einum stað.
Heildaryfirsýn yfir stöðu sjóðfélaga og launagreiðenda
Gögn uppfærð í rauntíma beint úr ykkar grunnkerfum
Ströngustu kröfum um gagnaöryggi og persónuvernd mætt


Minna álag, mun skilvirkari rekstur
Oft á tíðum krefjast erindi nánari úrvinnslu á milli starfsmanna í ýmissi umsýslu og skjalagerð. Með Grunn færir þú stóran hluta af þessari vinnu yfir í sjálfsafgreiðslu sem léttir verulega á innri verkferlum.
Félagsmenn geta skráð sig inn hvenær sem er til að skoða sín réttindi, fylgjast með stöðu umsókna eða skila inn gögnum. Þú tryggir að flókin og persónuleg erindi fái hraða og örugga afgreiðslu, um leið eykst þjónustustigið umtalsvert.
Ánægðir viðskiptavinir í Grunni