Tilbúnar tengingar

Talar beint við þitt viðskiptakerfi

Grunnur tengist öllum helstu bókhalds- og viðskiptakerfum. Sæktu gögn beint úr Microsoft Business Central, dk, Salesforce, vöruhúsi gagna og svo mætti lengi telja.

Öll gögn uppfærast sjálfkrafa og rauntímatengingin tryggir að engin tvískráning eigi sér stað. Þú heldur áfram að vinna í þínum kerfum og Grunnur sér um að birta gögnin.

Grunnur tengir Business Central, DK, Salesforce og vöruhús gagna í eitt yfirlit, svo upplýsingar flæði sjálfkrafa milli kerfa án tvískráningar.
Kona stýrir aðgangsheimildum eftir hlutverkum, svo hver notandi sjái aðeins þær upplýsingar sem hann hefur leyfi til að nálgast.

Fullkomin aðgangsstýring

Hafðu fulla stjórn á því hver sér hvað

Grunnur gerir þér kleift að stýra nákvæmlega hvaða notendur hafa aðgang að hvaða gögnum.

Veitt endurskoðanda aðgang að reikningum

Leyft starfsmönnum viðskiptavinar að sjá afmörkuð gögn

Stýrt aðgangi eftir hlutverki eða þörf

Tryggt að viðkvæm gögn fari ekki á rangan stað

Þessi fyrirtæki treysta okkur fyrir ánægju sinna viðskiptavina

Rafræn auðkenning

Snjöll og örugg innskráning

Viðskiptavinir skrá sig inn á augabragði rafrænum skilríkjum eða Passkey (FaceID eða fingrafar). Engin lykilorð, bara fullkomið öryggi.

Kona notar lífauðkenningu í síma til að staðfesta örugga innskráningu í tölvu.
Maður nálgast gögn fyrirtækis og viðskiptavinar í öruggu stafrænu umhverfi, án pappírsvinnu og tvískráningar.

Prókúruvirkni

Sjálfvirk nýskráning prókúruhafa

Slepptu allri handavinnu við nýskráningar fyrir fyrirtæki. Kerfið flettir sjálfkrafa upp í fyrirtækjaskrá og hleypir staðfestum prókúruhöfum beint inn án tafa.

Birting mælaborða

Lifandi mælaborð

Birtu flókin gögn á einfaldan og sjónrænan hátt. Tengdu og deildu mælaborðum eða skýrslum úr t.d. PowerBI beint inn á svæði viðskiptavinarins.

Teymi vinnur saman með skýrt yfirlit yfir gögn, árangur og lykiltölur svo ákvarðanir verði hraðari og öruggari.
Kona sérsníður útlit þjónustuvefs fyrir tölvu og síma svo upplifunin verði samræmd, skýr og í takt við vörumerkið.

Sérsniðið útlit

Þitt vörumerki, þitt útlit

Aðlagaður liti, lógó og myndefni að þínu vörumerki þannig að viðskiptavinurinn upplifi fullkomið samræmi í allri þjónustu fyrirtækisins.

Við viljum einfalda lífið

Með Grunnur færðu lausn sem virkar strax, sparar tíma og lækkar kostnað. Þjónustuveita sem einfaldlega gerir það sem hún á að gera án þess að flækja málin.

Grunnur að betri rekstri

Við hjálpum þér að brúa bilið milli þín og viðskiptavinarins.
Bókaðu stuttan kynningarfund með okkur fyrir nánari upplýsingar.

Suðurlandsbraut 10, fjórða hæð

108 Reykjavík

Grunnur er í eigu

Grunnur að betri rekstri

Við hjálpum þér að brúa bilið milli þín og viðskiptavinarins.
Bókaðu stuttan kynningarfund með okkur fyrir nánari upplýsingar.

hallo@norda.is

Suðurlandsbraut 10, fjórða hæð

108 Reykjavík

Grunnur er í eigu