Finndu svör án þess að spyrja
Birtu reikninga, hreyfingar, skjöl, samninga, stöður og aðrar upplýsingar beint á svæði viðskiptavinarins.

Gefðu viðskiptavinum einn öruggan stað til að nálgast upplýsingar, reikninga, skjöl og þjónustu þegar þeim hentar.
Þeir fá styttri leið að svörum. Þjónustuteymið fær færri endurteknar fyrirspurnir og meiri tíma í málin sem þurfa raunverulega athygli.
Komdu þjónustuvef í loftið á dögum eða vikum í stað mánaða.

Reikningurinn er í einu kerfi. Skjalið í öðru. Og þegar viðskiptavinurinn þarf upplýsingar hefst nýr tölvupóstur, símtal eða leit.
Gamla leiðin
Með Mínum síðum
Grunnur tengir þjónustuna við gögnin sem fyrirtækið vinnur nú þegar með. Viðskiptavinurinn fær skýra upplifun á einum stað í stað þess að upplýsingarnar séu dreifðar um tölvupósta, skjöl og ólík kerfi.
Birtu reikninga, hreyfingar, skjöl, samninga, stöður og aðrar upplýsingar beint á svæði viðskiptavinarins.

Fylgstu með notkun og virkni á Mínum síðum og fáðu skýra yfirsýn yfir þróunina.

Stýrðu því hver fær aðgang að hvaða upplýsingum.

Gerðu viðskiptavinum auðvelt að komast að þjónustunni án þess að slaka á öryggi.

Þjónustuvefurinn er aðlagaður að ímynd fyrirtækisins svo hann upplifist sem eðlilegur hluti þjónustunnar.

Viðskiptavinurinn fær skýra yfirsýn yfir þau félög sem hann hefur aðgang að.

Tengingar
Grunnur tengist bókhalds-, viðskipta- og upplýsingakerfunum sem fyrirtækið notar nú þegar.
Gögn geta flætt þaðan inn á þjónustuvefinn svo viðskiptavinurinn sjái réttar og uppfærðar upplýsingar án þess að starfsfólk þurfi að afrita þær milli kerfa.
Starfsfólkið heldur áfram að vinna þar sem það vinnur í dag. Grunnur sér um að birta upplýsingarnar þar sem viðskiptavinurinn þarf á þeim að halda.
Það þarf ekki þjónustufulltrúa til að senda afrit af reikningi, staðfesta stöðu eða finna skjal sem viðskiptavinurinn getur nálgast sjálfur.
Þegar algeng þjónusta færist yfir á Mínar síður fækkar endurteknum erindum. Viðskiptavinurinn fær þjónustu strax og starfsfólkið getur varið tímanum í mál þar sem þekking þess og aðstoð skiptir meira máli.
Viðskiptavinurinn á ekki að þurfa að velta fyrir sér tækninni á bak við þjónustuna. Hann á bara að komast örugglega inn og finna það sem hann þarf.
Grunnur styður örugga auðkenningu, dulkóðun og aðgangsstýringu svo hver notandi sjái aðeins þær upplýsingar sem hann hefur heimild til að nálgast. Reglulegar öryggisskoðanir og uppfærslur eru hluti af lausninni.
Sérsmíði byrjar oft á löngu verkefni áður en viðskiptavinurinn sér nokkurn ávinning.
Grunnur byrjar á tilbúnum grunneiningum. Þess vegna er hægt að setja fyrstu þjónustuna í loftið hraðar, læra af notkuninni og byggja síðan áfram eftir raunverulegum þörfum.
Þú fjárfestir fyrst í því sem skilar viðskiptavininum og fyrirtækinu mestum ávinningi, ekki í því að smíða grunninn undir kerfið.
Þjónustuvefur þarf ekki að gera allt á fyrsta degi.
Byrjaðu með þær aðgerðir sem skapa mesta vinnu í dag. Bættu svo við nýrri þjónustu eftir því sem notkunin eykst og þarfirnar verða skýrari.
Grunnur er byggður þannig að auðvelt sé að þróa áfram ofan á lausnina í stað þess að skipta henni út þegar fyrirtækið vex.
Einn staður til að nálgast upplýsingar, skjöl og þjónustu. Minni bið. Minni óvissa. Engin þörf á að hafa samband vegna mála sem hægt er að leysa strax.
Færri endurteknar fyrirspurnir og minna handvirkt upplýsingaflæði. Meiri tími fyrir flóknari mál og persónulegri þjónustu.
Viðskiptavinir geta nálgast reikninga og hreyfingar sjálfir í stað þess að óska eftir þeim í tölvupósti eða síma.
Stafræn þjónusta sem hægt er að byrja einfalt með og þróa áfram þegar þarfir breytast, án þess að byrja aftur frá grunni.
Heimar settu upp nýjar Mínar síður með Grunni. Að sögn markaðs- og þjónustustjóra fyrirtækisins gekk uppsetningin hratt og örugglega fyrir sig og þjónustan við viðskiptavini jókst verulega. Hann nefnir jafnframt hversu auðvelt sé að byggja frekari virkni ofan á Grunn.
„Það var kominn tími á nýjar Mínar síður hjá Heimum og fórum við í þá vinnu með Norda. Allt gekk hratt og örugglega fyrir sig, uppsetning var einföld með Grunni og hefur þjónustan við okkar viðskiptavini stóraukist.
Allskonar viðbætur í vinnslu og þá er svo frábært hversu auðvelt er að byggja ofan á Grunn.“
Pétur Rúnar Heimissonmarkaðs- og þjónustustjóri HeimaÞjónustuvefur, eða Mínar síður, er öruggt stafrænt svæði þar sem viðskiptavinir geta nálgast sínar upplýsingar og þjónustu án þess að þurfa að hafa samband við fyrirtækið í hvert skipti.
Það fer eftir þjónustunni. Til dæmis má birta reikninga, hreyfingar, skjöl og stöður, taka á móti erindum og umsóknum og byggja sérsniðin þjónustuferli eftir þörfum.
Nei. Grunnur er hannaður til að tengjast núverandi bókhalds- og viðskiptakerfum svo fyrirtækið geti áfram unnið í þeim kerfum sem það notar nú þegar.
Einfaldari þjónustuvefir geta farið í loftið á örfáum dögum og flóknari lausnir á nokkrum vikum. Umfangið fer eftir tengingum, virkni og sérsniðnum þörfum.
Nei. Hægt er að byrja með þær einingar sem skapa mestan ávinning og bæta síðan við eftir því sem þjónustan þróast.
Sjáðu hvernig Grunnur getur fært reikninga, upplýsingar, erindi og sjálfsafgreiðslu á einn öruggan stað án þess að fyrirtækið þurfi að sérsmíða þjónustuvef frá grunni.
Vafrakökur
Þessi vefur notar nauðsynlegar vafrakökur til að virka. Aðrar bætast aðeins við ef þú samþykkir þær. Nánar um persónuvernd