Fara beint í efni

Öll skilaboð á einum stað

Safnaðu þjónustusamskiptum á einn stað, óháð því hvaðan þau berast.

  • Skeljungur
  • Terra
  • Myllan
  • Faxaflóahafnir
  • Styrkás
  • Heimar

Tölvupóstur, vefspjall, Messenger, Instagramog fleiri samskiptaleiðir safnast saman á einum stað.

Þjónustuborð

Öll þjónustan tengd á einum stað

Tengdu pósthólf, vefspjall, vefform, samfélagsmiðla og önnur kerfi við Þjónustuborðið. Erindi berast sjálfkrafa á einn stað, svo teymið getur unnið saman að þjónustunni án þess að skipta stöðugt á milli kerfa.

  • Gmail
  • Vefspjall
  • Microsoft 365
  • DK bókhald
  • Business Central
  • Vefform
  • Forritaskil (API)
  • Fyrirtækjaskrá

Ein biðröð fyrir allt þjónustuteymið

Tölvupóstur, vefspjall, vefeyðublöð og aðrar tengdar rásir geta lent í sama vinnuferli. Hvert samtal fær stöðu, forgang, ábyrgðaraðila og þjónustufrest.

Sjáðu viðskiptavininn á meðan þú svarar

Við hlið samtalsins sér starfsmaðurinn tengiliðinn, fyrirtækið, fyrri samskipti, opin tækifæri og tengd verkefni. Viðskiptavinurinn þarf síður að útskýra söguna aftur.

Samstarf án þess að rugla viðskiptavininn

Starfsfólk getur skrifað innri athugasemdir, fylgst með máli og skipt um ábyrgðaraðila án þess að innri samskiptin séu send út.

Sjáðu áður en þjónustufresturinn rennur út

Sjónræn merki sýna hvaða samtöl eru að verða of sein og hvaða mál þurfa athygli fyrst.

Ávinningur

  • Færri gleymd skilaboð
  • Skýr ábyrgð
  • Styttri leit að upplýsingum
  • Samræmdari svör
  • Mælanlegri þjónusta

Þjónustukerfi sem heldur utan um hvert einasta mál

Í mörgum íslenskum fyrirtækjum er þjónustan rekin úr sameiginlegu pósthólfi. Það virkar á meðan fáir svara, en fljótlega fara að koma upp sömu spurningarnar: Er búið að svara þessum? Hver tók þetta mál? Hvað sögðum við síðast við þennan viðskiptavin? Skilaboð af vefspjalli og vefformum bætast svo við á enn öðrum stöðum.

Þjónustuborð Grunns er beiðnakerfi sem safnar þessu saman. Hvert erindi verður að samtali með stöðu, forgangi, ábyrgðaraðila og þjónustufresti, og allt teymið vinnur úr sömu biðröð. Þetta er helpdesk á íslensku, smíðað fyrir íslensk fyrirtæki frá upphafi, en ekki þýtt erlent kerfi.

Svona fer erindi í gegnum þjónustuborðið

  1. Erindið berst

    Viðskiptavinur skrifar í vefspjallið á vefnum ykkar eða sendir inn vefform og samtalið birtist í biðröðinni með öllum upplýsingum.

  2. Málinu er úthlutað

    Starfsmaður tekur það að sér eða sjálfvirk regla úthlutar því eftir rás, forgangi eða tegund og bætir við merki.

  3. Svarað með samhengi

    Við hlið samtalsins sérðu tengiliðinn, fyrirtækið, fyrri samskipti, opin tækifæri og verkefni. Þú þarft ekki að biðja viðskiptavininn að útskýra söguna aftur.

  4. Samstarf innanhúss

    Ef þú þarft aðstoð skrifar þú innri athugasemd eða færir málið á annan ábyrgðaraðila. Viðskiptavinurinn sér aðeins svörin.

  5. Fylgst með frestum

    Sjónræn merki sýna hvaða mál eru að nálgast þjónustufrest, svo þau gleymast ekki í biðröðinni.

  6. Málinu lokað

    Samtalið verður hluti af viðskiptavinasögunni og birtist í skýrslum.

Rásir í þjónustuborðinu

Vefspjall og vefform eru tilbúin í dag, og með forritaskilunum (API) getur þú opnað samtöl úr eigin kerfum. Tenging við sameiginlegt Gmail-pósthólf er í prófun. Þá verður póstur á þjónustunetfangið að samtali og svörin fara út frá sama netfangi. Messenger, Instagram og Microsoft 365 pósthólf eru væntanleg. Á tengingasíðunni sérðu alltaf nýjustu stöðuna.

Hvernig þjónustan tengist restinni af Grunni

Þjónusta og sala tala oft við sama fólkið. Í Grunni eru þjónustumálin skráð á sama viðskiptavinaspjald og sölutækifærin.

Fyrir hverja hentar þjónustuborðið?

Þjónustuborðið hentar fyrirtækjum þar sem fleiri en einn svara viðskiptavinum, þar sem erindi berast úr fleiri en einni átt eða þar sem skiptir máli að svara innan ákveðins tíma. Það hentar sérstaklega vel þegar sala og þjónusta þurfa að sjá sömu söguna. Í leiðarvísinum um CRM kerfi er farið nánar yfir hvernig þjónustuborð og CRM vinna saman.

Algengar spurningar

Hver er munurinn á þjónustuborði og sameiginlegu pósthólfi?

Í pósthólfi sérðu skilaboð. Í þjónustuborði sérðu mál með stöðu, ábyrgðaraðila, forgangi og fresti, ásamt sögu viðskiptavinarins við hliðina.

Getum við byrjað á þjónustuborðinu einu og sér?

Já. Grunnur er byggður úr einingum og þú getur byrjað á því sem leysir stærsta vandann í dag og bætt við síðar.

Er þjónustuborðið á íslensku?

Já, viðmótið er á íslensku og kerfið er þróað fyrir íslenska notendur. Þú getur prófað það frítt í 30 daga.

Gerðu þjónustunni auðveldara að svara rétt og á réttum tíma