Fara beint í efni

Kerfið svarar spurningum og sér um næsta skref

Spyrðu um viðskiptavin, fund, tækifæri eða verkefni og fáðu svar byggt á upplýsingunum í vinnusvæðinu. Settu svo reglur sem færa ferlið áfram þegar ákveðnir atburðir eiga sér stað. Endurtekin vinna á ekki að treysta á að einhver muni eftir henni.

Gervigreindaraðstoð í Grunni sem svarar spurningum og dregur saman verkefni dagsins

Fáðu svarið án þess að leita

Spyrðu hvað er opið hjá viðskiptavini, hvaða tækifæri eru í hættu eða hvað gerðist í síðustu samskiptum.

Mættu betur undirbúin

Fáðu samantekt fyrir fund með tengiliðum, opnum tækifærum, verkefnum og síðustu samskiptum.

Færðu vinnuna áfram úr samtalinu

Stofnaðu verkefni, færslur eða fundi án þess að fara í gegnum mörg eyðublöð.

Talaðu íslensku við kerfið

Notandinn þarf ekki að þýða vinnuna sína yfir á erlend kerfishugtök til að fá aðstoð.

Þegar nýtt tækifæri stofnast

Stofna verkefni fyrir eigandann og minna á eftirfylgni.

Þegar tækifæri vinnst

Skrá virkni, færa stöðu og láta rétta teymið vita.

Þegar þjónustumál berst

Úthluta því eftir rás, forgangi eða tegund og bæta við viðeigandi merki.

Þegar tilboð er samþykkt

Koma næstu skrefum í sölu og afhendingu af stað.

Sjá gervigreind og sjálfvirkni í verki

Sjálfvirknin minnkar endurtekna skráningu og hjálpar fyrirtækinu að fylgja sama ferli í hvert skipti.