Fara beint í efni

Sama viðskiptasaga

Rétta yfirsýnin fyrir
hvert teymi

Grunnur er eitt vinnusvæði, en hvert teymi sér það sem skiptir máli fyrir sína vinnu.

Fyrir söluteymi

Eyddu meiri tíma í samtöl sem færa söluna áfram

Grunnur hjálpar sölufólki að sjá tækifærin, samskiptasöguna og næstu verkefni án þess að viðhalda upplýsingunum í mörgum kerfum.

Ávinningur

  • Meiri tími í sölu
  • Skýr næstu skref
  • Öll samskipti á einum stað
  • Færri tækifæri gleymast
  • Betri yfirsýn yfir sölupípuna
  • Traustari söluspá
Fyrir þjónustuteymi

Svaraðu fyrr, með alla viðskiptavinasöguna við höndina

Grunnur safnar þjónustusamskiptum í eina vinnuröð og sýnir starfsfólkinu hver viðskiptavinurinn er, hvað hefur gerst áður og hver ber ábyrgð á næsta skrefi.

Ávinningur

  • Fyrri svör við fyrirspurnum
  • Öll samskipti á einum stað
  • Skýr ábyrgð á næstu skrefum
  • Fyrri saga alltaf við höndina
  • Betri yfirsýn yfir biðröðina
  • Færri mál gleymast
Fyrir fjármál

Skýrari samþykktir og betri mynd af endurteknum tekjum

Tengdu samþykktir, tilboð, áskriftir og viðskiptavini svo fjármálateymið þurfi síður að rekja ákvörðunarsöguna í tölvupóstum og töflureiknum.

Ávinningur

  • Ein röð fyrir reikninga sem bíða samþykkis
  • Skýr samþykktarkeðja
  • Sýnileg ákvörðunarsaga
  • Áskriftir tengdar viðskiptavinum
  • Yfirsýn yfir mánaðarlegar og árlegar endurteknar tekjur
  • Samhengi milli samþykkts tilboðs og þess sem var selt
Fyrir stjórnendur

Færri stöðufundir. Skýrari mynd af rekstrinum

Sjáðu stöðuna í sölu, þjónustu, verkefnum og tekjum út frá vinnunni sem teymið er þegar að vinna.

Spurningar sem Grunnur á að hjálpa að svara

  • Hvað er líklegt til að seljast næstu vikur?
  • Hvaða tækifæri eru að festast?
  • Hvaða þjónustumál eru að verða of sein?
  • Hvaða verkefni eru komin fram yfir skilafrest?
  • Hverjar eru endurteknar tekjur?
  • Hvaða viðskiptavinir þurfa athygli?